Fjársvikafyrirtæki hóta fólki 28. júní 2005 00:01
Þess eru dæmi, að erlend auglýsingasvikafyrirtæki hringi í forsvarsmenn íslenskra fyrirtækja heim að kvöldlagi og hóti þeim öllu illu ef þeir greiði ekki fyrir veitta "þjónustu." Starfsemi erlendu fjárplógsfyrirtækjanna snýst um að fá fyrirtæki til að samþykkja skráningu í gagnabanka, að því er virðist án endurgjalds. Í smáu letri sem fylgir skilmálum er hins vegar kveðið á um að greiða þurfi háar fjárhæðir fyrir skráninguna. Reikningar upp á 70 þúsund krónur, sem er algeng upphæð, koma því forráðamönnum fyrirtækja í opna skjöldu. Þetta segir Sigurður Jónsson framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu. SVÞ hafa nú varað sérstaklega við þessum svikafyrirtækjum, sem einkum láta til sín taka á vorin og sumrin. Sigurður segir, að svo virðist sem þeir sem stunda þessa iðju telji að auðveldara sé að villa um fyrir sumarafleysingafólki heldur en starfsmönnum sem hafa meiri reynslu. Svikararnir beiti sífellt nýjum aðferðum svo erfitt er að varst þá. "Við höfum fengið fjölmargar ábendingar og beiðnir um aðstoð undanfarnar vikur frá Íslendingum sem hafa lent í klóm fyrirtækja sem stunda fjárplógsstarfsemi," segir Sigurður og bætir við að mest sé kvartað undan skráningarfyrirtækinu European City Guide. "Ef reikningar frá þessu fyrirtæki eru ekki greiddir er skuldurum hótað hörðum innheimtuaðgerðum og ærnum viðbótarkostnaði. SVÞ ráðleggja fyrirtækjum að greiða ekki slíka reikninga nema þau telji sig hafa efnt til skuldanna," bætir hann við. European City Guide er skráð á Spáni. Það er fyrirtækið Silver Stone Management einnig, sem sérhæfir sig í því að svíkja út fjármuni með því að bjóða mikla ávöxtun peninga með lítilli fyrirhöfn og telja Íslendingum trú um að nú sé tækifærið til að hagnast á sterkri stöðu krónunnar. SVÞ hafa fengið kvörtun frá aðila sem lagði inn þúsundir bandaríkjadala á bankareikning fyrirtækisins í von um skjótfenginn gróða en peningarnir hurfu fljótt og ekki hefur enn náðst í fulltrúa fyrirtækisins, sem áður var svo vinsamlegur og hjálpfús í símtölum og bréfasendingum, að sögn Sigurðar.
Fréttir Innlent Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira