Neyðast til að kveðja í kyrrþey 24. júní 2005 00:01
Kostnaður vegna jarðarfara og erfidrykkju er orðinn svo mikill að margir neyðast til að kveðja látna ástvini í kyrrþey. Kirkjan segir það óheillaþróun að jarðarfarir reynist mörgum fjárhagslegur baggi. Á Prestastefnu í Neskirkju hefur meðal annars verið rætt um helgisiði og handbók kirkjunnar og hafa umræðuhópar tekið til umfjöllunar málefni varðandi messur, skírn, hjónavígslu og útfarir. Innan kirkjunnar hafa menn áhyggjur af þróun jarðafara hér á landi, sérstaklega þeim mikla kostnaði sem fylgir erfidrykkju. Kristján Valur Ingólfsson, prestur á Þingvöllum, segir að hugsanlegt sé að þær séu fjárhagslegur baggi á fólki. Það komi m.a.fram í því að það aukist að útfarir fari fram í kyrrþey. Þá losni fólk m.a. við þann kostnað sem fylgir erfidrykkjunni. Krisjtán segir að það sé ekki lengur neinn svangur eins og í gamla daga þegar jarðarförin tók allan daginn og fólk kom kannski langa leið að og þurfti að fá eitthvað að borða áður en það hélt heim. Menn innan kirkjunnar vilji gjarnan að erfidrykkjur séu einfaldari í sniði með minni kostnaði. Það þurfi ekki að borga mörg þúsund krónur fyrir hvern gest þegar verið sé að hugsa um nærveru og vinsemd. Ýmsir telja að einhvers konar samkeppni um að halda fína erfidrykkju kunni að leiða til þess að tilefnið gleymist. Kristján Valur segir að aðalatriði verði þá að fara í kaffið en ekki að kveðja hinn látna. Af þessu hafi kirkjan líka áhyggjur. Ferli útfararinnar eigi ekki að rjúfa. Hinn látni sé borinn fram fyrir Guð í kirkjunni og svo sé honum fylgt síðustu skrefin í kirkjugarðinum og svo sé hægt að fara í kaffi eða annað. Það hljóti að vera þannig að megininntak athafnarinnar sé að sýna hinum látna virðingu en hann sjá ekki neina virðingu í því að geyma hinn látna úti í bíl á meðan fólk fari í kaffi.
Fréttir Innlent Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Fleiri fréttir Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Sjá meira