Eitt tjald við Kárahnjúka 23. júní 2005 00:01
Tveir einstaklingar í einu tjaldi mynda nú mótmælendabúðirnar sem andstæðingar Kárahnjúkavirkjunar eru að koma þar upp. Fimm til viðbótar bætast við fyrir nóttina. Skipuleggjendur hugðust koma upp búðunum fyrir sumarsólstöður í fyrradag en í dag var þar aðeins eitt lítið tjald, við Sauðá, um þrjá kílómetra frá Kárahnjúkastíflu. Ekkert sást til mannaferða við tjaldið en fréttaritari Stöðvar 2 fékk þær upplýsingar að þar inni væru tveir einstaklingar sofandi, karl og kona, enda hefðu þau komið á svæðið seint um nótt og tjaldað í morgun. Lögregla og þeir sem annast öryggismál á svæðinu fylgjast hins vegar með. Yrsa Sigurðardóttir, tæknistjóri eftirlits við Kárahnjúka, segir að þar á bæ séu menn viðbúnir að ræða við fólkið og biðja það að fara ef það komi inn á vinnusvæði. Að öðru leyti megi það vera við Kárahnjúka og mótmæla. Aðspurð af hverju hún hafi mestar áhyggjur segir Yrsa að það sé öryggi mótmælendanna. Á svæðinu séu opnar sprengingar og stórar og þungar vinnuvélar. Þetta sé því hættulegt svæði og ekki svæði sem almenningur eigi erindi inn á. Þegar fréttaritari Stöðvar 2 á Egilsstöðum, Sigurður Ingólfsson, var á heimleið af Kárahnjúkum í dag mætti hann fimm einstaklingum sem ætluðu einnig að tjalda. Helena Stefánsdóttir, ein þeirra, segir stefnt að fjölskyldutjaldbúðum og menningarviðburðum og útivist og gamani. Hún telji að mótmælendurnir muni hafa það mjög notalegt. Þau séu mjög vel búin. Aðspurð hversu lengi þau ætli að vera á staðnum segir Einar Þórhallsson, sem einnig var á leið að Kárahnjúkum, að það sé ekki alveg ákveðið. Fyrst verði þau í nokkra daga en komi svo aftur. Þetta fari allt eftir aðstæðum. Aðspurð segist Helena vona fólk fjölmenni og að það verði mikið fjör á staðnum.
Fréttir Innlent Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Ekki í fyrsta sinn sem Trump stingur upp á Ísland yrði hluti af Bandaríkjunum „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Sjá meira