Seltirningar takast harkalega á 23. júní 2005 00:01
Seltirningum gefst á morgun kostur á að kjósa á milli tveggja skipulagstillagna, H- og S-tillögu, um Hrólfsskálamel og Suðurströnd. Munurinn á tillögunum felst aðallega í því að svokölluð H-tillaga gerir ráð fyrir því að knattspyrnuvöllurinn við Suðurströnd verði færður að Hrólfsskálamel, þar sem Ísbjörninn stóð þar til hann var rifinn í fyrra. Þannig verði hægt að koma fyrir íbúðarbyggð bæði að Hrólfsskálamel og við Suðurbraut og byggja 130 nýjar íbúðir. S-tillagan gerir ráð fyrir að hafa völlinn á sama stað og að 90 nýjar íbúðir verði byggðar. Halldór Árnason, sem starfaði með rýnihópnum sem lagði tillögurnar fram, segir það mikilvægt fyrir Seltirninga að nýta landrými sitt vel til íbúðarbyggðar svo íbúum bæjarins fækki ekki frekar. Því styðji hann H-tillöguna. Hann segist gruna að andstaðan við þá tillögu komi helst frá einbýlishúsaeigendum í nágrenni malarvallarins sem af einhverjum ástæðum óttist að fá fjölbýlishús í grennd við sig. Hann bendir á að tillaga um að færa knattspyrnuvöllinn yfir að Hrólfsskála hafi komið fram á íbúaþingi fyrir þremur árum og síðan verið samþykkt af skipulagsnefnd, æskulýðs- og íþróttaráði og svo bæjarstjórn. Hann skilji því ekki andstöðuna við þessa tillögu nú. Þá muni gervigrasvöllur við Hrólfsskálamel einnig nýtast skólabörnum í Mýrarhúsaskóla. Þór Whitehead, sagnfræðingur og íbúi á Seltjarnarnesi, er Halldóri ósammála um ágæti H-tillögunnar. Hann telur að skólakrakkar vilji heldur hafa stórt graslendi við skólann sinn en gervigrasvöll til að leika sér á í frímínútum. Þór telur að samkvæmt H-tillögunni verði aðkoman að miðbænum afar ljót þar sem gert sé ráð fyrir að sex 20 metra háir flóðljósaturnar og 26 metra langur veggur blasi þar við. "Þá verður varla nokkurri verslun komið fyrir í nýja hverfinu ef völlurinn verður á Hrólfsskálamel. Hvað á þá að gera ef Eiðistorgið rýmir ekki þær verslanir sem þarf í framtíðinni?" spyr hann. Þór telur að ef fótboltavöllurinn fari á Hrólfskálamel verði svo þrengt að honum að uppbygging við hann verði nær ómöguleg. Því verði örugglega farið að huga að því að færa hann þegar þurfi að endurnýja gervigrasið, sem endist í um tíu ár. Þór telur því skynsamlegri framtíðaráform að hafa völlinn við Suðurströnd þar sem er nóg pláss og kappleikir angra ekki aldraða og aðra sem munu búa að Hrólfsskálamel. Hann segist enn fremur ekki sjá af hverju gervigrasvöllurinn verði að vera nálægt búningsaðstöðu. "Ég sé ekki að íþróttafólkinu sem mun nota þennan völl verði skotaskuld úr því að skokka nokkra tugi metra til að komast á völlinn." Einnig telur hann að ef menn vilji hafa búningsklefana nær vellinum sé hægt að koma þeim fyrir norðanmegin á húsinu við hlið vallarins við Suðurströnd. Halldór svarar því aftur á móti til að ekki sé þörf á plássfrekri uppbyggingu við gervigrasvöllinn og að allir af forráðamönnum Gróttu séu hlynntir því að hafa völlinn á Hrólfsskálamel. Því þyki honum einkennilegt að aðrir sem þekki síður til reyni að hafa vit fyrir þeim um íþróttauppbyggingu félagsins.
Fréttir Innlent Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira