Ágúst fagnar niðurstöðunni 23. júní 2005 00:01
Nýkjörinn varaformaður Samfylkingarinnar fagnar niðurstöðu framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar um að ekkert hafi verið málum blandið varðandi kosningar á landsfundi flokksins. Hörð gagnrýni kom fram á varaformannskosningarnar á landsfundinum. Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, sem bauð sig fram til embættis varaformanns á landsfundinum, hafði uppi stór orð að kosningu lokinni. Hann sagði í fréttum Stöðvar 2 þann 22. maí að heilu bílfarmarnir af ungu fólki hefðu streymt á fundinn rétt fyrir kosninguna og því væri ekki skrýtið að úrslitin gætu orðið óvænt. Hann gekk svo langt að segja vinnubrögð mótframbjóðanda síns á mörkum þess að geta talist siðleg. Í úttekt framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar kemur hins vegar fram að framkvæmd kosninga á landsfundi flokksins hafa gengið mjög vel. Þar segir jafnframt að kosningar í öll embætti hafi verið löglegar og að betur hafi verið staðið að skilum á listum yfir kjörna landsfundarfulltrúa en oftast áður. Ágúst Ólafur Ágústsson, nýkjörinn varaformaður, segir þetta staðfestingu á því að ekkert hafi verið við vinnubrögð hans að athuga í aðdraganda kosninganna. Lúðvík vildi hins vegar ekkert tjá sig um málið í samtali við fréttastofu að öðru leyti en því að þetta væri skoðun framkvæmdastjórnar flokksins.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Hent nauðugri út úr hryllingshúsi vegna ógreiddrar leigu Innlent Kári segist hafa verið rekinn vegna lygasögu Innlent Ætla að hernema Gasaströndina Erlent Segir réttarríkið standa í vegi sínum Erlent Íbúar Gasa verði fluttir á brott „í þágu eigin öryggis“ Erlent „Kannski ég læri að prjóna sokka“ Innlent Ekki sé hægt að kaupa fólk út eða rífa hús sem séu byggð samkvæmt leyfum Innlent Brosa hringinn á upphafsdegi strandveiða Innlent „Engin örugg skref, bara eitt illa unnið pennastrik“ Innlent Páfabíll verður færanleg heilsugæsla fyrir börn á Gasa Erlent Fleiri fréttir Mannréttindastofnun Íslands tekin til starfa „Kannski ég læri að prjóna sokka“ Vaknaði eldsnemma til að hefja veiðar þrátt fyrir slæma veðurspá „Engin örugg skref, bara eitt illa unnið pennastrik“ Kári Stefánsson í beinni, „hryllingshús“ og trillukarlar Gekk inn á lögreglustöðina í annarlegu ástandi og var snarlega handtekinn Kári segist hafa verið rekinn vegna lygasögu Halla og Björn halda til Svíþjóðar Brosa hringinn á upphafsdegi strandveiða Strandveiðar hafnar og óvissa í kvikmyndagerð Í beinni: Málþing um snjóflóð og samfélög Hent nauðugri út úr hryllingshúsi vegna ógreiddrar leigu Skallaði mann og dónalegur við lögregluþjóna Ekki sé hægt að kaupa fólk út eða rífa hús sem séu byggð samkvæmt leyfum Allt of mikið af svipuðum íbúðum á markaði skapi misræmi Bíða með að selja íbúðir frekar en að lækka verðið Óboðlegt að vista hælisleitendur sem eigi að vísa úr landi í fangelsum Brottfararstöð fyrir hælisleitendur og fasteignamarkaður í ójafnvægi Óvenjulítill snjór á hálendinu auki rýrnun jökla í sumar Segist hafa skipað hæfasta fólkið þvert á athugasemdir verkfræðinga Bæjarstjóri Ölfus biðlar til ríkisins vegna Garðyrkjuskólans „Maður skyldi ætla að það þurfi tiltekið siðferði til að starfa í lögreglunni“ Snjólaust á fjöllum og Garðyrkjuskólinn grútnar niður Njósnamálið, hræringar í evrópskum stjórnmálum og fjárhagur borgarinnar Eldur í bíl við fjölbýlishús í Urriðaholti Vakinn af „ölvunarsvefni“ inni á baði og brást ókvæða við Býður upp á sögugöngu um svæðið sem hún vill vernda Sex ára framtíðar sauðfjárbóndi á Rangárvöllum Samfylkingin bætir við sig og sauðburður á fullu Sinueldur við Landvegamót Sjá meira