Skilti með leiðbeinandi hraða 22. júní 2005 00:01
Ný umferðarskilti, sem eiga að leiðbeina ökumönnum um að lækka hraðann á hættulegum köflum, verða sett upp á þjóðvegum landsins á næstu vikum. Tölvuútreikningar eru notaðir til að ákvarða hve mikinn hraða einstakir vegarkaflar þola. Nýju umferðarskiltin eru tilbúin en þau verða með fimm mismunandi hröðum: 30, 40, 50, 60 og 70 kílómetra. Með hraðamerkinu verður ætíð viðvörunarmerki sem segir hvers kyns hætta er framundan, oftast beygjumerki. Þetta eru ekki bannmerki um hámarkshraða heldur upplýsingamerki til að leiðbeina ökumönnum um hvaða hraði er skynsamlegur þegar varasamur kafli nálgast á þjóðveginum. Rögnvaldur Jónsson, framkvæmdastjóri hjá Vegagerðinni, segir allt vegakerfið vera til inni í tölvum út frá GPS-mælingum og búið sé að reikna út þá staði sem ekki þoli þann hámarkshraða sem sé leyfður á vegunum. Merkin verða einkum sett upp við beygjur og brekkur, helmingurinn fer upp í sumar en hinn helmingurinn á næsta ári. Samtímis hrindir Vátryggingafélag Íslands af stað, fimmta árið í röð, átaki til að draga úr umferðarslysum. Kynntar voru upplýsingar í dag um svarta bletti á þjóðvegum landsins þar sem verstu slysin verða. Þeir eru á hringveginum undir Hafnarfjalli, í Stafholtstungum, við Fornahvamm, Síká í Hrútafirði, við Geitaskarð í Langadal, við Kotá í Skagafirði og í útjaðri Akureyrar. Þéttast eru blettirnir á Suðurlandsvegi milli Hveragerðis og Reykjavíkur, í Kömbum, við Þrengslagatnamót, í Hveradalabrekku og í Lækjarbotnabrekku. Átakið var kynnt á Grensásdeild þar sem fram fer endurhæfing fórnarlamba umferðarslysa og voru nokkur þeirra viðstödd í dag til að miðla af reynslu sinni, þeirra á meðal Berent Karl Hafsteinsson sem missti annan fótinn í mótorhjólaslysi eftir ofsaakstur á Akranesi fyrir þrettán árum. Hann lenti í holu á rúmlega 200 km hraða, missti stjórn á hjólinu, hentist út í grjótgarð og hlaut nærri 50 beinbrot. Berent segir vinstri hendi sína í „buffi“, hann hafi brotið níu hryggjarliði og tvo hálsliði og því sé í raun kraftaverk að hann skuli vera á gangandi.
Fréttir Innlent Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Erlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Fleiri fréttir Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða og innviðahópur ekki skipaður með formlegum hætti Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Sjá meira
Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða og innviðahópur ekki skipaður með formlegum hætti