Verðmæti heildaraflans eykst 22. júní 2005 00:01
Leyfilegur heildarafli á næsta fiskveiðiári verður ekki meiri en á því fiskveiðiári sem er að ljúka. Samt er búist er við að útflutningsverðmæti aflans aukist um átta milljarða og verði 130 milljarðar króna. Heildaraflinn verður 354 þúsund þorskígilditonn á næsta fiskveiðiári sem hefst 1. september. Þar af verður leyft að veiða 198 þúsund tonn af þorski, 105 þúsund tonn af ýsu, 80 þúsund tonn af ufsa mega sjómenn veiða þetta árið og fimmtíu og sjö þúsund tonn af karfa. Ákvörðun Árna Mathiesen sjávarútvegsráðherra er í megindráttum í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknarstofnunar en þó með ákveðnum undantekningum. Þegar kemur að minna veiddum tegundum fer ráðherrann töluvert fram úr ráðleggingum og segist þar styðjast við upplýsingar frá atvinnugreininni. Þarna komi inn í nokkur atriði, t.d. sveiflur í ráðgjöfinni á milli ára - og breytingarnar að þessu sinni séu umtalsverðar - og þarna eru tegundir þar sem kvótinn hefur ekki alltaf verið veiddur undanfarin ár að sögn Árna. „Og miðað við þær rannsóknir sem fara fram á þesssum tegundum þá tel ég rétt að við förum varlega í að gera miklar breytingar,“ segir Árni. Á sjómannadaginn lýsti Árni óánægju sinni með stöðu þorskstofnsins, sagði aðgerðir ekki hafa skilað nægilega góðum árangri og að við værum í reynd enn á sama stað og fyrir þrjátíu árum þegar Hafrannsóknarstofnun gaf út sína frægu svörtu skýrslu. Á næsta fiskveiðiári má veiða sjö þúsund tonnum minna af þorski þótt samanlagður afli sé sá sami. Árni segist telja að í meginatriðum sé jafnvægi í tegundunum. „Ég á ekki von á neinum stórum breytingum næstu árin, nema þá kannski helst hvað varðar ýsu og ufsa en þar hafa verið gerast mjög jákvæði hlutir á undanförnum árum,“ segir Árni.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira