Óbreyttur heildarkvóti 22. júní 2005 00:01
Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra heldur sig við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar og heimilar veiðar á 198 þúsund tonnum af þorski og 105 þúsund tonnum af ýsu á næsta fiskveiðiári. Heildarkvótinn í þorskígildistonnum verður óbreyttur eða 354 þúsund tonn. Miðað við óbreytt gengi krónunnar gerir sjávarútvegsráðherra ráð fyrir að útflutningsverðmæti verði um 130 milljarðar króna á næsta fiskveiðiári eða átta milljörðum króna meiri en á því fiskveiðiári sem nú stendur yfir. Sjávarútvegsráðherra heimilar veiðar á 80 þúsund tonnum af ufsa, 57 þúsund tonnum af karfa, 15 þúsund tonnum af grálúðu og 13 þúsund tonnum af steinbít. Þetta er í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar fyrr í mánuðinum. Hins vegar heimilar sjávarútvegsráðherra 75 próentum meiri skrápflúruafla en fiskifræðingar ráðlögðu, 60 prósentum meiri sandkolaafla en ráðlagt var og 25 prósentum meiri afla af skarkola en Hafrannsóknastofnunin taldi ráðlegt að veiða. Spurður um það hvort þessar tegundir þoli veiðar umfram ráðgjöf frekar en þorskur eða ýsa svarar Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra að miklar sveiflur hafi verið í ráðgjöfinni varðandi sumar þeirra. "Líka hefur það komið fyrir að menn hafa ekki veitt upp í heimildirnar og talið hagkvæmara að flytja kvótann yfir í aðrar og verðmætari tegundir. Þetta er líka afli sem kemur upp með öðrum tegundum. Þótt ekki sé farið allskostar eftir ráðgjöfinni að því er þessar tegundir varðar vísa ákvarðanarinar í sömu átt og tillögur Hafrannsóknastofnunarinnar." Árni kveðst ekki reyna að beina flotanum í aðrar tegundir þegar útvegurinn sæti kvótaskerðingu í þorski eða öðrum bolfisktegundum. "Enda er skerðingin í þorskveiðunum tiltölulega lítil," segir Árni Mathiesen.
Fréttir Innlent Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Katla skelfur Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira