Karlar leita sér frekar hjálpar 22. júní 2005 00:01
Meginástæða þess að sjálfsvígum karla hefur fækkað á undanförnum árum er að þeir eru frekar tilbúnir að ræða vandamál sín og leita sér hjálpar en áður. Þetta segir landlæknir. Verkefnið Þjóð gegn þunglyndi hefur nú formlega verið starfrækt í tæp tvö ár. Hvati verkefnisins var upphaflega sá að tíðni sjálfsvíga hafði færst niður í æ yngri aldurshópa og þá sérstaklega meðal yngri karlmanna. Síðustu ár hefur hins vegar orðið breyting á málum þessum og hefur sjálfsvígum karla fækkað verulega undanfarin þrjú ár, sérstaklega 24 ára og yngri. Það kemur aftur á móti á óvart að sjálfsvíg kvenna standa í stað. Sigurður Guðmundsson landlæknir segir enga góða skýringu á því liggja fyrir. Það geti þó verið að þarna spili inn í að sjálfsvíg kvenna séu mun færri og því erfiðara að mæla breytingu. Á árinu 2004 voru sjálfsvíg karla 13,6 á hverja 100 þúsund íbúa en voru 22,5 á árinu 2001. Landlæknir segir ekkert eitt svar við því hvers vegna sjálfsvígum karla hefur fækkað. Hann segir þó veðurfar, efnahagsástand, meðvitaðri aðstandendur, forvarnir vegna vímuefnafíknar og betri greiningu eflaust hafa hjálpað til. Þá segir hann karla mun viljugri í dag til að leita sér hjálpar en áður því sjálfsvíg séu mun meira rædd í samfélaginu en áður. Þar til fyrir nokkrum árum hafi þeim verið „stungið undir stól“. Og landlæknir er bjartsýnn um að sjálfsvígum muni fækka enn frekar í framtíðinni. Landlæknir segir helsta markmið átaksins að bæta þekkingu almennings á þunglyndi og sjálfsvígshegðun og um leið að draga úr fordómum.
Fréttir Innlent Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Katla skelfur Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira