Sammála um ábyrgð stórfyrirtækja 18. júní 2005 00:01
Í þjóðhátíðarræðu sinni í gær lét Halldór Ásgrímsson í ljós þá skoðun að stórfyrirtæki með góða afkomu ættu að bera samfélagslega ábyrgð og taldi eðlilegt að þau tækju þátt í mikilvægum málum á sviði nýsköpunar, menningar og velferðar. "Þeim ber að nýta hagnað til að byggja upp," sagði Halldór. Björgólfur Guðmundsson, formaður bankaráðs Landsbankans, sló mjög svipaðan tón í ávarpi ársskýrslu Landsbankans fyrir síðasta ár. Þar sagði hann ásýnd Landsbankans hafa eflst á árinu þar sem hann hefði einsett sér "að sýna samfélagslega ábyrgð og taka þátt í margvíslegum verkefnum sem öll eiga það sameiginlegt að efla menntir, listir og menningu og bæta mannlíf." Nýjasta dæmið um samfélagslegan stuðning Landsbankans er við Baráttuár kvenna sem hefst með Þingvallafundi í dag, en Landsbankinn er bakhjarl átaksins. Hann styður einnig við íþróttir og margvíslegt menningarstarf. Landsbankinn starfrækir sérstakan menningarsjóð og einnig á Minningarsjóður Margrétar Björgólfsdóttur að úthluta um hundrað milljónum á ári hverju. Jóhannes Jónsson í Bónus kveðst einnig að mörgu leyti vera sammála skoðun Halldórs Ásgrímssonar. "Ég held það sé mjög vel til fallið að stórfyrirtæki með góða afkomu leggi eitthvað af mörkum og beini þá fjármagninu í þann farveg þar sem stjórnendum fyrirtækjanna finnst skóinn kreppa," segir Jóhannes. "Skoðun hins opinbera á ekki ein að ráða för." Jóhannes segir Baug alltaf hafa reynt að láta eitthvað af hendi rakna. "Ef við gefum ekki neitt, þá fáum við ekki neitt," segir Jóhannes. Baugur ákvað nýlega að stofna sjóð sem á að styrkja menningar- og listalíf og velferðarmál barna. 300 milljónir króna verða lagðar í sjóðinn á árinu en hann á að sameina ýmsa styrktarstarfsemi fyrirtækisins. Annað nýlegt dæmi um fyrirtæki sem reynir að leggja eitthvað af mörkum er Samherji, sem ákvað að styrkja nýsköpun í atvinnulífi Stöðvarfjarðar um tuttugu milljónir, en frystihúsi Samherja þar verður lokað í september.
Fréttir Innlent Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira