Milljarða fram úr áætlunum 17. júní 2005 00:01
Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri fjármálaráðuneytisins eru gjöld ríkissjóðs tæpum tíu milljörðum lægri en fjárlög gera ráð fyrir. Það er mikil breyting frá síðustu árum en þá fór ríkisreikningur að meðaltali yfir tuttugu milljarða fram úr fjárlögum. Brotalamir voru hins vegar á rekstri ríkisstofnana, sem fór samtals 1,7 milljarða fram úr fjárlögum og virðist að mestu leyti mega rekja það til nokkurra mennta- og heilbrigðisstofnana. Mestu munaði um ýmsar um viðhalds-, vega- og byggingaframkvæmdir sem var frestað og þá spöruðust tæpir þrír milljarðar vegna hafna- og flugvallarframkvæmda og framkvæmda á vegum menntamálaráðuneytisins sem voru innan heimilda. Stofnkostnaður og viðhald voru samtals 7,2 milljörðum innan heimilda. Sú ríkisstofnun sem mest fór fram úr heimildum var Landspítali-Háskólasjúkrahús 945 milljónir fram úr fjárlögum, og samanlagður halli Heilsugæslunnar í Reykjavík, heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni og Tryggingastofnunar ríkisins er um 800 milljónir. Rekja má halla þessara stofnana til uppsafnaðs rekstrarvanda frá fyrri árum. Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri og Hólaskóli, sem heyra undir landbúnaðarráðuneytið, fóru samanlagt 250 milljónir króna fram úr fjárlögum. Aðrir háskólar fóru 427 milljónir fram úr. Þá fóru framhaldsskólarnir 254 milljónir fram úr heimildum, en þeir hafa þó greitt niður uppsafnaðan halla frá fyrri árum og flestir þeirra héldu sig innan rammans. Ráðherrar bera ábyrgð á framkvæmd fjárlaga og þeim ber skylda til að bregðast við ef útgjöld fara fjögur prósent fram úr heimildum. Menntamálaráðuneytið er rétt undir þessum mörkum með 3,9 prósenta halla en landbúnaðar- og utanríkisráðuneytið fara bæði langt yfir þetta þak. Þessi þrjú ráðuneyti virðast öll hafa dregið úr öðrum kostnaði til að vega upp á móti því. Þannig voru beingreiðslur til bænda 243 milljónum innan heimilda árið 2004, utanríkisráðuneytið greiddi ekki rúman hálfan milljarð í þróunarsjóð Evrópusambandsins og framkvæmdir á vegum menntamálaráðuneytisins reyndust 1.526 milljónir innan heimilda.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira