Lögfræðiálit á hæfi Halldórs 17. júní 2005 00:01
Stjórnarandstaðan ætlar að kalla eftir áliti lögfræðinga á hæfi forsætisráðherra til að fjalla um sölu Búnaðarbankans. Formaður Samfylkingarinnar segir nauðsynlegt að skoða öll tengsl sem hafi getað valdið vanhæfi, meðal annars vinatengsl forsætisráðherra og Finns Ingólfssonar, forstjóra VÍS. Lögmanni Skinneyjar - Þinganess sást yfir að þrír menn sem áttu helming í hlutafélaginu Ketilaugu væru náin skyldmenni Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra. Þetta kom því ekki fram í greinargerð hans til Ríkisendurskoðunar. Stjórnarandstaðan benti á þetta á fundi fjárlaganefndar í gær en þetta þýðir að 34 prósent Skinneyjar - Þinganess eru í eigu fjölskyldu forsætisráðherra en ekki fjórðungur eins og talið var í minnisblaði Ríkisendurskoðunar. Ríkisendurskoðandi sagði það ekki breyta neinu um fyrri niðurstöðu málsins. Halldór las yfir minnisblað Ríkisendurskoðunar en gerði ekki athugasemd við að þetta atriði hefði farið forgorðum en þetta er í annað sinn sem rangar upplýsingar koma fram um málið. Stjórnarandstaðan í fjárlaganefnd telur þetta sýna svo ekki verði um villst að rannsókn Ríkisendurskoðunar sé í skötulíki. Enn hafi ekki farið fram raunveruleg athugun á hluthöfum í Skinney - Þinganess. Minnihluti fjárlaganefndar hafi að tilviiljun í gær óskað eftir því að vita hvaða fólk væri á bak við hlutafélagið Ketilaugu þar sem það væri stærsta einstaka hlutafélagið í hópnum. Eitt símtal í fyrirtækjaskrá hafi síðan leitt þetta í ljós. Það þurfi að fara fram raunveruleg athugun á því hvaða eignatengsl liggi þarna til grundvallar. Stjórnarandstaðan vill að skoðuð séu öll þau atriði sem geti ráðið vanhæfi, ekki einungis fjölskyldutengsl. Bent er á náin vinatengsl Finns Ingólfssonar, sem var í forystusveit S-hópsins, og Halldórs. Þá er bent á að í lögum sé gert ráð fyrir því að menn eigi að hafa frumkvæði að því að benda á það, leiki vafi á hæfi þeirra. Ráðherrann hafi vanrækt þá skyldu. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir að leitað verði álits tveggja óháðra lögfræðinga á þeim lögfræðilegu álitaefnum sem upp hafi komið en þau lúti meðal annars að frumkvæðisskyldu forsætisráðherra og því hvort aðrar vanhæfisástæður en ættartengsl geti komið til álita. Þá sé lögformleg staða ráðherranefndarinnar óljós. Hún áréttar þó að lögfræðihlutinn sé einungis ein hlið málsins. Eftir standi að ráðherrar ríkisstjórnarinnar þurfi að bera sína pólitísku ábyrgð gagnvart Alþingi og kjósendum sínum.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira