Gerð Kárahnjúkastíflu hálfnuð 16. júní 2005 00:01
Gerð Kárahnjúkastíflu, stærsta mannvirkis Íslands, er nú hálfnuð og er endanleg mynd komin á hluta stíflunnar. Eftirlitsaðilar segja verktakann kominn yfir erfiðasta hjallan og fram undan sé beinn og breiður vegur. Jökulsá á Dal rennur enn um Hafrahvammagljúfur en í 750 metra löngum hjáveitugöngum fram hjá stíflustæðinu. Borun ganganna var einn fyrsti verkþáttur Kárahnjúkavirkjunar og forsenda þess að hægt yrði að hefjast handa við gerð stíflunnar stóru. Þótt fyrstu undirbúningsframkvæmdir hæfust í gljúfrinu fyrir tveimur og hálfu ári eru aðeins eitt og hálft ár frá því ánni var veitt fram hjá og unnt var að byrja að byggja upp stífluna. Það hefur tekið furðu skamman tíma að hlaða þetta ferlíki upp enda er beitt til þess stórvirkustu vinnuvélum allan sólarhringinn. Stíflan er þegar búin að loka gljúfrinu og gott betur, hún er meira að segja komin vel upp fyrir gljúfurbarmana. Á þeirri hlið sem snýr niður með ánni er stíflan komin með sína endanlegu grjótkápu. Á einu og hálfu ári er búið að byggja upp 120 metra af þessu hrikalega mannvirki. Það eru þó enn 80 metrar eftir því hún á að vera 200 metra há. En stíflan verður ekki bara grjóthrúga. Vatnsmegin, það er á þeirri hlið sem snúa mun að væntanlegu lóni, verður stíflan klædd steypukápu og er þegar farin að komast mynd á hluta hennar með lagningu fyrsta steypulagsins. Neðst á stíflunni verður hinn ógnarþungi táveggur en hann er stærsti steypuklumpur Íslands, á hæð við Hús verslunarinnar en álíka breiður og þrjú slík hús. Steypan sem fór í hann hefði dugað í 400 einbýlishús. Stíflugerðin gekk erfiðlega um tíma, bæði vegna flóðs í ánni og misgengis, en til að vinna upp tapaðan tíma og flýta verkinu greip verktakinn Impregilo til þess ráðs að skipta út portúgölskum starfsmönnum fyrir kínverska og um leið að fjölga verkamönnum. Eftirlitsaðilar Landsvirkjunar segja allt benda til þess nú að stíflan klárist á tilsettum tíma. Yrsa Sigurðardóttir, tæknistjóri eftirlits við Kárahnjúka, segir enga spurningu um að það versta sé að baki og gangurinn sé orðinn mjög góður. Stíflan sé um það bil hálfnuð og 40 prósent búin af göngunum þannig að beinn og breiður vegur sé fram undan. Ferðamönnum er ekki leyft að koma inn á vinnusvæðið en þeir geta fengið ágæta mynd af framkvæmdunum af sérstökum útsýnispalli en þangað liggur malbikaður vegur úr Fljótsdal. Nú eru aðeins 15 mánuðir í það að stíflugerðinni ljúki við Kárahnjúka. Tappinn verður settur í ána í september á næsta ári, en þá hefst lónfylling. Til að menn átti sig betur á hæð stíflunnar má geta þess að hún nálgast nú hæð tveggja Hallgrímskirkjuturna en mun fullbyggð verða á við þrjá slíka.
Fréttir Innlent Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira