Innlent

Brutu lögin í góðri trú

Héraðsdómur Suðurlands sýknaði í gær Humarvinnsluna í Þorlákshöfn fyrir brot á lögum um stjórn fiskveiða. Framkvæmdastjórinn sagðist hafa brotið lögin fyrir mistök, en hann hefði verið nýbyrjaður í útgerð. Átti brotið sér stað sumarið 2003. Hann hefði ekki gert sér grein fyrir því að búið væri að svipta skipið veiðileyfi þegar hann flutti aflaheimildir á það. Dómarinn taldi veiðileyfissviptinguna því ekki hafa tekið gildi gagnvart fyrirtækinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×