Innlent

Samnorrænt bóluefni

Heilbrigðisyfirvöld Norðurlanda ætla að kanna möguleika á að framleiða sameiginlega bóluefni gegn fuglaflensu. Norrænir heilbrigðis- og félagsmálaráðherrar ákváðu þetta á fundi í Þórshöfn í Færeyjum. Sérstakur vinnuhópur verður skipaður í þessu skyni. Er honum gert að skila tillögum sínum í nóvember. Á ráðherrafundinum kom fram að litið er á fuglaflensuna sem mestu heilbrigðisógn sem heimurinn hefur staðið frammi fyrir um langa hríð. Af hálfu Íslands var lögð áhersla á að kanna möguleika á framleiðslu bóluefnis enda væri það mikilvægast fyrir utan að móta alþjóðlega stefnu um viðbrögð við hinni miklu ógn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×