Innlent

Enn ósætti í Landakotsskóla

Sjö kennarar í Landakotsskóla hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna tölvupósts sem stjórn skólans sendi til foreldra í fyrradag. "Okkur finnst enn og aftur að verið sé að slá ryki í augu nemenda og foreldra varðandi stöðu mála í skólanum. Við höfðum bundið vonir við að nýr formaður myndi bregðast við með það að leiðarljósi að höggva að rótum vandans," segir í yfirlýsingunni. "Því miður hafa þær vonir brugðist." Síðastliðið mánudagskvöld fundaði Björg með fulltrúum þessara kennara. "Á þeim fundi kom nákvæmlega ekkert fram sem bendir til þess að skólastjórn og yfirstjórn Landakotsskóla, ætli á nokkurn hátt að breyta stjórnarháttum sínum, né heldur að læra af fyrri mistökum." Kennarahópurinn hefur farið fram á það að sjá bréf frá þriggja manna kennararáði, en Björg greindi frá því á fundinum að hún myndi ekki beita sér fyrir því. Björg Thorarensen vildi ekki tjá sig um yfirlýsinguna í gærkvöldi og sagðist hafa tekið þá ákvörðun að skiptast ekki á skoðunum um málefni skólans í fjölmiðlum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×