Innlent

Fimm miljóna skemmdir

Skemmdir í Nordica hóteli vegna mótmælendanna í fyrradag nema sennilega um 5-6 milljónum að sögn hótelstjóra. Bæði varð tjón á tölvubúnaði og innréttingum á hótelinu. Þrír einstaklingar slettu grænlitaðri súrmjólk yfir gesti á alþjóðlegri ráðstefnu um áliðnaðinn. Bretinn Paul Gill hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á mánudag, en hann er talinn hafa stjórnað aðgerðum. Íslendingunum tveimur hefur verið sleppt úr haldi og hafa hérlend náttúruverndarsamtök þvegið hendur sínar af mótmælaaðgerðum þeirra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×