Nýir sendiherrar 15. júní 2005 00:01
Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri fer til starfa hjá utanríkisþjónustunni 1. september næstkomandi og verður sendiherra í Kanada með aðsetur í Ottawa. Guðmundur Árni Stefánsson þingmaður Samfylkingarinnar verður sendiherra í Stokkhólmi frá sama tíma og hættir því þingmennsku í sumar. Ekki hefur verið tilkynnt um breytingar í sendiráði Íslands í Mósambík. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er í undirbúningi að flytja sendiráðið frá Mósambík til Suður Afríku. Gert er ráð fyrir að Sigríður Dúna Kristmundsdóttir mannfræðiprófessor við Háskóla Íslands taki við sendifrúarstöðu þar næsta vor. Kjartan Jóhannsson, sendiherra í Brüssel, Jón Baldvin Hannibalsson, sendiherra í Helsinki og Þorsteinn Pálsson, sendiherra í Kaupmannahöfn flytjast allir til Íslands samkvæmt tilkynningu utanríkisráðuneytisins í gær. Ýmsar aðrar breytingar verða á mannahaldi í utanríkisþjónustunni. Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra í Genf flyst til Brüssel, en sendiherra í Genf verður Kristinn F. Árnason skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofunnar. Jón Egill Egilsson tekur við starfi hans þar. Hannes Heimisson aðalræðismaður í New York verður sendiherra í Helsinki. Guðmundur Eiríksson sendiherra í Kanada fer í leyfi frá störfum og Sigríður Snævarr flyst á skrifstofu ráðuneytisstjóra og og verður staðgengill Gunnars Snorra Gunnarssonar ráðuneytisstjóra. Ásgeir Friðgeirsson, sjálfstætt starfandi ráðgjafi, er næsti maður á lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi og ætti samkvæmt því að taka við þingsæti Guðmundar Árna Stefánssonar þegar hann hefur störf í utanríkisþjónustunni. Ásgeir kveðst ekki enn hafa gert upp við sig hvort hann taki þingsætið.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira