Tvöfalt fleiri í búðum en bæ 15. júní 2005 00:01
Smíði álvers Alcoa í Reyðarfirði er komin á fulla ferð og fer starfsmannafjöldi á byggingarlóðinni hraðvaxandi með hverjum mánuði. Þegar framkvæmdirnar ná hámarki á næsta ári munu 1.500 manns búa í vinnubúðum við hliðina á 700 íbúum Reyðarfjarðar. Meginþungi stóriðjuframkvæmdanna á Austurlandi hefur fram til þessa verið inni á hálendi fjarri mannabyggð. Íbúar fjórðungsins eru þessar vikurnar að skynja betur þetta tröllaukna verkefni eftir því sem umsvifin aukast á álverslóðinni í Reyðarfirði og framkvæmdirnar færast nær byggðarlögunum. Frá þjóðveginum til Eskifjarðar og Neskaupstaðar blasa nú við iðandi vinnuvélar í tugatali af öllum stærðum og gerðum á vegum hins alþjóðlega verktakafyrirtækis Bechtel. Björn S. Lárusson, samskiptastjóri Bechtel og HRV, segir vinnuna hafa gengið eins og best verði á kosið, verkið sé nákvæmlega á áætlun og mikil ánægja sé með framvindu þess. Fjöldi undirverktaka kemur að verkinu, þeir stærstu Suðurverk, Héraðsverk og steypustöðvarnar BM-Vallá og Steypustöðin. Jarðvegsvinnan á lóðinni hófst síðastliðið haust og síðan þá hafa menn sprengt og fært til þrjár til fjórar milljónir rúmmetra af efni. Tímamót urðu í apríl þegar hin eiginlega smíðavinna hófst. Björn segir að hafi verið hafist handa við að steypa undirstöðurnar og svo hafi BM-Vallá byrjað á stautunum sem séu ofan á undirstöðunum. Undirstöðunum fjölgar dag frá degi en með þeim mótar nú þegar fyrir kerskálunum sem verða tveir og það risastórir. Það eru komnir rúmlega 250 metrar af undirstöðum en 800 metra vantar enn upp á því kerskálarnir verða samtals 1100 metra langir. Það jafngildir um það bil 10 knattspyrnuvöllum. 380 manns eru nú að störfum lóðinni og búa um 300 þeirra í stórum vinnubúðum sem eru í jaðri kauptúnsins. Búðirnar stækka ört eftir því sem umfang verksins vex og þar verða íbúar á næsta ári ríflega tvöfalt fleiri en íbúar kauptúnsins þegar starfsmannafjöldi nær hámarki. Björn segir íbúafjöldann aukast hratt fram á mitt næsta ár þegar hámarki framkvæmdanna verði náð. Þá verði um það bil 1600 menn að störfum en svo dragi hratt úr fjölda þeirra til loka árs 2007 þegar skila á álverinu til Alcoa.
Fréttir Innlent Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira