Innlent

Viðbót við psoriasismeðferð

Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra og Eðvarð Júlíusson, stjórnarformaður Bláa Lónsins, afhjúpuðu við opnun lækningalinda Bláa lónsins á föstudag áletraða hraunhellu sem tákna á upphaf framkvæmda við lindina. Lækningalindin, sem er samvinnuverkefni íslenskra stjórnvalda og Bláa lónsins er sögð stórbæta þjónustu við psoriasissjúklinga, auk þess að vera tímamótaverkefni í heilsutengdri ferðaþjónustu. Í ávarpi sínu benti Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra á að Tryggingastofnun hafi greitt kostnað psoriasis- og exemsjúklinga sem þurft hafi að leita meðferðar í lóninu. "Hin virku efni í jarðsjónum; steinefni, kísill og þörungar, ásamt ljósameðferð gera það að verkum að psoriasismeðferð Bláa lónsins hefur reynst mjög mikilvæg viðbót og valkostur við meðferð þessa erfiða sjúkdóms," sagði hann og kvaðst fullviss um að rannsóknar- og lækningastarfsemi lækningalindarinnar efldi heilbrigðisþjónustu í landinu enn frekar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×