Innlent

Vigfús veiðir lúðu

Vigfús Vigfússon á Dögg SF landað 2-3 tonnum af lúðu á þriðjudag, að því er fram kemur á fréttavefnum horn.is. Lúðurnar ku vera af öllum stærðum og mældust þær stærstu um tveir metrar að lengd. Samkvæmt horn.is lagði Vigfús lúðulínuna við Ingólfshöfðann og verður aflinn seldur ferskur til Englands. Fylgir fréttinni að Vigfús Vigfússon hafi hingað til ekki lagt lúðuveiðar fyrir sig. Hann þykir með fisknari trillukörlum og kollegi hans orðaði það þannig við horn.is að það væri alveg sama hvaða veiðarfæri hann setti í sjóinn, alltaf væri mokveiði hjá Fúsa. Lúðu má matreiða á ýmsan máta, til dæmis grilla, steikja og sjóða. Þá má snæða hana hráa.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×