Slegist um garðsláttinn 15. júní 2005 00:01
Fjöldi fólks hefur ýmist ekki tíma eða nennu til að slá garðana sína og kaupir þá þjónustu af þeim sem hana bjóða. Fjölmargir taka að sér garðslátt og daglega auglýsir hátt í tugur sláttumanna þjónustu sína í smáauglýsingum dagblaðanna. "Ég vil frekar nota tímann til að spila golf," sagði garðeigandi sem ekki slær sjálfur í samtali við Fréttablaðið. Hann vildi ekki láta nafns síns getið af ótta við að þykja flottræfill. Sonur hans annaðist sláttinn lengi vel en eftir að hann flutti að heiman ákvað karl að kaupa þjónustuna utan úr bæ. "Það er mikið að gera núna," segir Bjarni Jóhann Þórðarson sem rekur sláttuþjónustuna Garðar best. Hann hefur verið sautján ár í bransanum og hefur slegið garða sumra viðskiptavinanna í þau sautján ár. Hann segir samkeppnina harða og verður var við undirboð. "Einhverjir eru duglegir að bjóða mjög lágt í lóðir sem eru meira virði. Það er eru undirboð í þessu." Bjarni Jóhann heldur þó sínu og vel það því árlega bætast nýir viðskiptavinir í hópinn. Sigurður Ólafsson hefur slegið garða í þrjú ár og tekur undir með Bjarna Jóhanni þegar kemur að samkeppnismálunum. "Já, það er hörð samkeppni í þessu. Það sést ekki síst á öll auglýsingunum," segir hann en er þó hvergi banginn. "Sumarið er að verða fullbókað hjá mér." Algengt verð fyrir slátt á einbýlishúsagarði er á bilinu fimm til sjö þúsund krónur en fyrir fjölbýlahúslóðir þarf að greiða frá fimmtán og upp í 45 þúsund krónur, allt eftir stærð. Verðið hefur hækkað lítillega með árunum sem kemur meðal annars til af því að atvinnumenn í garðslætti þurfa nú að greiða fyrir móttöku grass hjá Sorpu.
Fréttir Innlent Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira