Innlent

Sunny Jane á leið til Kalíngrad

Flutningaskipið Sunny Jane, sem tók við afla úr svokölluðum sjóræningjaskipum suður af Íslandi, er nú á leið til Kalíngrad sem tilheyrir Rússlandi með aflann. Skipinu var neitað um löndun í Hollandi. Síðasta föstudag tók skipið olíu og kost í Hollandi og lét úr höfn áleiðis til Kalíngrad. Rússar tilheyra NEAFC, sem hefur umsjón með veiðum á svæðinu og mega þeir því ekki veita skipinu þjónustu, löndun eða annað. Eftirlistmenn þar eiga að fara um borð og rannsaka afla. Samkvæmt upplýsingum fréttastofunnar er Sunny Jane frystiskip þannig að farmurinn ætti að vera óskemmdur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×