Innlent

Slettu grænu sulli á gesti

Yfirheyrslur yfir fólki sem sletti grænlitaðri súrmjólk yfir fjölda manns á álráðstefnu á Hótel Nordica í hádeginu í gær stóðu fram á kvöld. Fólkið, breskur karlmaður og Íslendingar, karl og kona, var handtekið á staðnum og gisti fangageymslur í nótt. Hlé var gert á ráðstefnunni eftir uppákomuna, en slettur gengu yfir gesti, fyrirlesara, húsgögn og tæki. Fólkið er ekki talið tengjast íslenskum náttúruverndarsamtökum. Liðsmönnum Náttúruvaktarinnar var til dæmis ekki skemmt yfir uppákomunni því í kjölfarið var settur á lögregluvörður og ekki hægt að dreifa bæklingum til gesta, líkt og áætlað var.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×