Innlent

Bensínhækkun hjá öllum félögum

Öll olíufélögin hafa nú hækkað verð á eldsneyti síðustu tvo dagana en Esso reið á vaðið í gærmorgun og hækkaði verð á bensíni og dísilolíu um eina krónu. Skeljungur og Olís fylgdu í kjölfarið og skömmu síðar breyttu sjálfsafgreiðslufélögin verðinu hjá sér. Er lítri af 95 oktana bensíni nú víðast seldur á 106,20 krónur á þeim stöðvum og munar afar litlu á þeim og hinum reglubundnu þjónustustöðvum þar sem algengt sjálfsafgreiðsluverð er 107,70 á höfuðborgarsvæðinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×