Menningarauki í miðborginni 14. júní 2005 00:01
Stjórn Listaháskóla Íslands hefur farið þess á leit við borgarstjóra og menntamálaráðherra að skólanum verði fundin lóð á bakka gömlu hafnarinnar í Reykjavík. Þar á tónlistar- og ráðstefnuhús að rísa og standa ríki og borg saman að þeirri framkvæmd. Listaháskólinn var stofnaður 1999 og hefur síðan verið starfræktur í þremur húsum í Reykjavík. Af því hefur hlotist margvíslegt óhagræði og brýnt að mati stjórnenda skólans að koma starfseminni undir eitt þak. "Ávinningurinn af sambúð listgreinanna nýtist okkur ekki nema að litlu leyti meðan við erum klofin," segir Hjálmar H. Ragnarsson, rektor Listaháskólans. "Rekstrarlega er þetta líka þungt og erfitt, við þurfum þrennt af öllu því við erum á þremur stöðum. En það er aðallega þessi kraftur í sambúð listanna sem við teljum að geti margfaldast í einu húsi," segir rektor. Húsnæðismál Listaháskólans hafa verið til umræðu frá því áður en hann var formlega stofnaður en senn gæti séð fyrir endann á þeim. Hjálmar velkist ekki í vafa um að miðborg Reykjavíkur sé rétti staðurinn fyrir Listaháskóla Íslands. Hann segir nauðsynlegt að krafturinn sem skólinn býr yfir nýtist samfélaginu öllu og það gerist best í miðborginni. Þá sé samlegð starfseminnar með þeim stofnunum og fyrirtækjum sem þar eru fyrir augljós. "Svæðið getur öðlast enn meira líf með okkur. Í skólanum er starfsemi frá morgni til kvölds flesta daga vikunnar á meðan tónlistarhúsið verður meira viðburðatengt." Skólinn sé ekki einasta menntastofnun heldur líka miðstöð menningar og listar. Það er því ekki bara skólans vegna heldur líka borgarsamfélagsins sem miðborgin er hentugur staður. "Ég held að það hljóti að vera eftirsóknarvert fyrir miðborgina að fá þennan hóp af fólki til sín. Við erum ekki bara að tala um kennara og nemendur heldur mun fjöldi listamanna og fólks sem tengist listum eiga hér leið um og gestir koma frá útlöndum og utan af landi. Svo er vert að nefna að um þriðjungur af húsnæðinu sem við hyggjumst byggja er fyrir almenning. Hér verða margskonar listviðburðir og uppákomur af hvaða tagi sem er." Áætlanir gera ráð fyrir að nýtt hús Listaháskólans verði um 11.000 fermetrar og að það kosti á milli tvo og þrjá milljarða króna að reisa það. Að mati Hjálmars er nægt pláss fyrir stórt hús á byggingarreitunum við gömlu höfnina og í erindinu til borgarstjóra og menntamálaráðherra sé verið að biðja um að skólinn verði hafður með í þróunar- og skipulagsferlinu sem nú stendur. Og hann er bjartsýnn á að erindinu verði vel tekið af yfirvöldum og að hægt verði að setja skólann í nýju húsi við gömlu höfnina í Reykjavík haustið 2008. "Ég er mjög bjartsýnn. Skólinn er sterkur og ímynd hans er góð, vitund um gildi háskóla í samfélaginu er að aukast og menntamálaráðherra hefur lýst yfir að hann telji byggingu Listaháskóla Íslands vera forgangsmál á sviði háskólamála." Listaháskólinn Skipholti.MYND/HeiðaListaháskólinn Laugarnesi.MYND/HeiðaListaháskólinn Sölvhólsgötu.Mynd/Heiða
Fréttir Innlent Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira