Innlent

Land flugvallarins verði selt

Sjálfstæðismenn á Akureyri skora á samgönguráðherra að hefja viðræður við Reykjavíkurborg um sölu á landi ríkisins sem Reykjavíkurflugvöllur stendur á, sem og að finna heppilega staðsetningu fyrir nýja innanlandsflugvöll í nágrenni höfuðborgarinnar. Í áskorun frá stjórn Sjálfstæðisfélags Akureyrar segir að fáist viðunandi verð fyrir landið telji stjórnin það einboðið að nýta fjármunina til að gera nýja flugvöll og bæta samgöngur höfuðborgarinnar við aðra landshluta, til dæmis með því að leggja hálendisveg yfir Kjöl.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×