Innlent

Flaggað í hálfa við álráðstefnu

Þjóðfánar blöktu í hálfa stöng utan við ráðstefnu um áliðnað á Nordica-hótelinu síðdegis. Ekki var það þó skipuleggjendum ráðstefnunnar sem fannst þetta viðeigandi heldur náttúruvinum sem stóðu fyrir mótmælum á fundarstað. Heimsráðstefna um áliðnað stendur þessi dægrin hér á landi þar sem meðal annars er leitað svara við spurningum eins og hvar er að finna ódýra og örugga orku fyrir næstu kynslóð álvera. Fjöldi erlendra gesta er á ráðstefnunni auk Íslendinga: Valgerður Sverrisdóttir ávarpaði hana, Orkuveita Reykjavíkur og Hitaveita Suðurnesja bjóða í mat auk þess sem Íslendingar í áliðnaði eru áberandi. Ekki eru allir hrifnir af þessu, eins og til að mynda Náttúruvaktin, hópur náttúruunnenda, andstæðingar Kárahnjúkavirkjunar, áhugafólk um verndun Þjórsárvera og fleiri. Kæra Íslendingar sig um að eiga hlut í þeirri framtíðarsýn sem hér er verið að smíða án þess að vera spurðir? Geta Íslendingar látið þungaiðnaðinn, í krafti fjármagns og valdatengsla, leggja línurnar? Viljum við fórna náttúruauðlindum okkar enn frekar til að tryggja „örugga, ódýra orku fyrir næstu kynslóð álbræðslna“? Þetta eru spurningarnar sem náttúruvinir, eins og þeir kalla sig, vildu fá svör við utan við fundarstaðinn í dag og gerðu sitt ýtrasta til að ná athygli fundargesta, enda hafa sumir þeirra nýlokið eins konar námskeiði í borgaralegri óhlýðni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×