Rignir líklega um helgina 13. júní 2005 00:01
Þó að margir fagni regnleysinu þá eru þurrkar farnir að valda vandræðum í landbúnaði um allt land. Ólafur Dýrmundsson, ráðgjafi hjá Bændasamtökunum, segir að ef ekki fari fljótlega að rigna þá gæti það valdið skaða í úthaga og ekki síður á túnum. Beitt hafi verið á tún nú í vor því úthagar voru ekki tilbúnir og því valdi keðjuverkun því að heyskap muni mjög líklega seinka ef fram heldur sem horfir. Ólafur segir lítið um að menn vökvi hjá sér túnin, slíkt sé alltaf erfitt og ómarkvisst. Haraldur Eiríksson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir nú sennilega ekki stefna í neitt þurrkamet. Hann segir að útlit sé fyrir einhverja rigningu austanlands í dag, sennilega verði þurrt á morgun en svo fari líklega að rigna eitthvað um land allt fyrir og um helgina og þá geti bændur tekið gleði sína á ný. Árneshreppur á Ströndum er sennilega sá hreppur landsins sem hefur orðið verst fyrir þurrkunum. Þar hefur nær ekkert rignt af viti síðustu vikur. Bjarnheiður Fossdal, bóndi á Melum, segir þó að nú horfi til betri vegar enda spáð norðanátt fram yfir helgi. Túnin séu farin að gulna en menn voni það besta og séu farnir að bera skít á tún.
Fréttir Innlent Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira