Líkur sagðar á framsali Mladic 9. júní 2005 00:01
Ratko Mladic, fyrrverandi hershöfðingi Bosníu-Serba, kann að verða framseldur til stríðsglæpadómstólsins í Haag bráðlega, að því er aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna lét hafa eftir sér í gær. Hann boðaði ennfremur að Bandaríkjastjórn hygðist aflétta frystingu tíu milljóna dala greiðslu sem hún hafði áður samþykkt að veita til uppbyggingar í Serbíu og Svartfjallalandi. "Það er einlæg von okkar að Serbía muni nú taka síðustu skrefin sem nauðsynleg eru til að fá Mladic hershöfðingja sendan til Haag þar sem hann verði látinn svara til saka fyrir þá glæpi sem hann stýrði er 8.000 karlmenn og drengir voru myrtir í Srebrenica," sagði Nicholas Burns, einn aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, eftir viðræður við fulltrúa Serbíustjórnar í Belgrad í gær. Í janúar síðastliðnum hafði Bandaríkjaþing ákveðið að frysta skyldi tíu milljóna hjálpargreiðslu til Serbíu vegna meintrar ófullnægjandi samvinnu ráðamanna þar við stríðsglæpadómstólinn í Haag. Síðan þá hafa nokkrir Serbar verið framseldir til dómstólsins.
Erlent Fréttir Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Katla skelfur Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Fleiri fréttir Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Sjá meira