Innlent

Veikindi oftast ástæða vanskila

Umsóknum um fjármálaráðgjöf fækkaði heldur á milli ára, úr 823 árið 2003 í 703 á síðasta ári. Vanskil voru að meðaltali svipuð milli ára, ríflega 2 milljónir króna á hvern umsækjanda. Helstu ástæður þeirra voru veikindi í tæplega 24 prósent tilvika og atvinnuleysi í um 16 prósent tilvika. Fjölmennasti hópur viðskiptavina ráðgjafarstofunnar á síðasta ári voru einstæðar mæður. Þá vekur athygli stækkandi hópur einhleypra karla sem sótt hafa sér aðstoð, en á síðasta ári voru þeir um 23 prósent umsækjenda eftir að hafa fjölgað ört síðustu tvö árin þar á undan. Langstærstur hluti skulda viðskiptavinanna voru fasteignaveðlán eða yfir 60 prósent. Hins vegar voru vanskilin langmest í öðrum bankalánum með persónuábyrgðum og opinberum gjöldum



Fleiri fréttir

Sjá meira


×