Innlent

KEA vill Neytendastofu norður

Kaupfélag Eyfirðinga svf. hefur boðist til að leggja lóð á vogarskálarnar til að Neytendastofa sem fyrirhugað er að setja á fót verði á Akureyri. Í ályktun sem stjórn KEA hefur sent frá sér kemur fram að félagið hefur óskað eftir viðræðum við Valgerði Sverrisdóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, um að Neytendastofa verði staðsett á Akureyri. "KEA er tilbúið að leggja fram fjármuni ef Neytendastofa verður staðsett á Akureyri en hversu mikla er ekki hægt að segja á þessu stigi," segir Andri Teitsson, framkvæmdastjóri KEA. Í ályktuninni segir einnig að stjórnin fagni þeirri ákvörðun Guðna Ágústssonar, landbúnaðarráðherra, að Landbúnaðarstofnun verði staðsett á Selfossi. "Þetta er staðfesting á því að ríkisstjórnin vill flytja stofnanir og opinber störf út á land og það er fagnaðarefni," segir Andri. Í byrjun maí óskaði stjórn KEA eftir viðræðum við sjávarútvegsráðherra um flutning á meginstarfsemi Fiskistofu og Hafrannsóknastofnunar til Akureyrar en Andri segir formlegt svar ekki hafa borist frá ráðherra. "Ég reikna þó með að við fáum fund fljótlega með ráðherra þar sem þessi mál verða til umræðu," segir Andri.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×