Innlent

Unglæknar fá leiðréttingu

Landspítalinn hefur skipað starfsnefnd sem fer yfir vinnutíma unglækna með það fyrir augum að laga hann að ákvæðum vinnutímatilskipunar Evrópusambandsins. Nefndin á að koma með tillögur að nýju vaktafyrirkomulagi unglækna fyrir 27. júní, en í því verður þá farið eftir ákvæðum um lágmarkshvíldartíma og hámarksvinnutíma. "Við fögnum þessu, en spítalinn ætlar samt að halda áfram málarekstri sínum," segir Bjarni Þór Eyvindsson, formaður Félags unglækna, en í byrjun apríl var dómtekið í Héraðsdómi Reykjavíkur mál unglækna á hendur spítalanum til að fá vinnutímaákvæðin virt. ESA eftirlitsstofnun EFTA, Fríverslunarsambands Evrópu sendi íslenskum stjórnvöldum "rökstutt álit" í apríl vegna þess að vinna unglækna hafði ekki verið löguð að vinnutímatilskipun Evrópusambandsins. Þá hefur ríkislögmaður óskað eftir lengdum fresti til að skila inn greinargerð um vinnutíma unglækna, en hann átti að sögn Bjarna að skila henni inn í byrjun mánaðarins. "Við erum sum sé enn að bíða eftir henni, en svo er þessi vinna farin af stað af hálfu spítalans."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×