Innlent

Reykjavík vart flokkuð sem borg

"Með hliðsjón af viðmiðum um þéttbýli og þéttleika byggðar þá er ég ekki viss um að Reykjavík félli annars staðar undir þá skilgreiningu að vera borg," segir Orri Gunnarsson, verkfræðingur. Hann gagnrýnir hversu mikið landsvæði innan borgarmarka fer undir samgöngumannvirki og telur það óeðlilega mikið miðað við aðrar borgir af sömu stærðargráðu. Bendir Orri á tölur Níels Einars Reynissonar máli sínu til stuðnings en Níels komst að því að tæp 50 prósent landflæmis innan borgarmarkanna fara undir samgöngumannvirki. "Ég nefni sem dæmi fjölda mislægra gatnamóta í borginni en hvergi annars staðar er hægt að finna tólf slík í 150 þúsund manna borg. Það eru til milljónaborgir sem aldrei hafa byggt ein slík gatnamót og almennt er staðan sú í dag að lagst er gegn slíkum mannvirkjum. Land undir slíkt er bæði stórt og dýrt, framkvæmdin er dýr, viðhald er dýrt og deila má um hvort þau leysa einhvern vanda." Orri segir að rannsóknir hafi sýnt að ólíkt því sem áður var haldið þá dregur þétting byggðar úr umferð en ekki öfugt. Þá gefst meira og betra tækifæri til að nýta almenningssamgöngur og borgaryfirvöld þurfa að framfylgja stefnu sinni um þéttingu byggðar mun harðar fram."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×