Innlent

Skólaslit víða í grunnskólum

Grunnskólabörn ganga út í sumarið þessa dagana við skólaslit í grunnskólum landsins. Álftamýrarskóli sleit skólastarfinu í morgun og hélt um leið upp á fjörutíu ára afmæli sitt. Það eru tæplega 45 þúsund grunnskólanemendur sem eru þessa dagana að ljúka skólastarfi og ganga út í sumarið. Það ríkti því mikil eftirvænting meðal nemenda í Álftamýrarskóla í dag þegar skólanum var slitið og afmælinu fagnað. Undirbúningur fyrir afmælishátíðina hefur staðið yfir síðustu daga og náði hátíðin hámarki sínu þegar skólafáni sem nemendur höfðu útbúið var dreginn að húni utan við skólann í morgun. Steinunn Ármannsdóttir, skólastjóri Álftamýrarskóla, segir að undirbúningur fyrir hátíðina hafi staðið í fjóra daga og það hafi allir nemendurnir komið að henni með einhverjum hætti ásamt starfsmönnum. 42 krakkar útskrifist nú úr 10. bekk en alls séu 360 nemendur í skólanum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×