Tillaga um minni þorskkvóta 6. júní 2005 00:01
Hafrannsóknastofnunin leggur til að dregið verði úr þorskveiðum um sjö þúsund tonn á næsta fiskveiðiári. Í fyrra lagði stofnunin til að þorskaflinn yrði 205 þúsund tonn en leggur til 198 þúsund tonna aflahámark nú. Fram kemur í skýrslu stofnunarinnar um nytjastofna og aflahorfur á næsta fiskveiðiári að nýliðun í þorskstofninum hafi verið undir væntingum mörg undanfarin ár og enn sjáist ekki umtalsverð batamerki þótt hrygningarstofninn sé tekinn að stækka. Talið er að ef þorskur verði veiddur samkvæmt núgildandi aflareglu séu töluverðar líkur á að hrygningarstofninn fari aftur minnkandi. Að mati Hafrannsóknastofnunarinnar hafa verið veidd um 30 prósent af stofninun á ári undanfarin 10 ár. Yfirgnæfandi líkur eru taldar á að hrygningarstofninn vaxi ef þetta hlutfall verður lækkað niður í 20 prósent og af þeim sökum ætlar stofnunin að fara fram á breytingar á aflareglu með það í huga að lækka veiðihlutfallið. Ástand ýsustofnsins er talið gott og athygli vekur afar sterk nýliðum og aukin útbreiðsla. Því er lagt til að aflahámark verði 105 þúsund tonn en stofnunin lagði til 90 þúsund tonna hámark í fyrra. Miðað við aflareglu mætti veiða allt að 140 þúsund tonn. Hafrannsóknastofnunin telur hins vegar að flotinn muni forðast að veiða smæsta og yngstu ýsuna þótt hún sé komin inn í veiðistofninn auk þess sem búast megi við að skyndilokanir verði fleiri. Ástand ufsa er viðunandi að mati stofnunarinnar og er mælt með fimm þúsund tonna aukningu aflahámarks eða 80 þúsund tonnum. Grálúðuafli á sóknareiningu hefur minnkað um 50 prósent undanfarin ár og benda mælingar til að stofninn sé í sögulegu lágmarki. Lagt er til 15 þúsund tonna aflahámark. Engin breyting verður á steinbíts- og síldveiðum samkvæmt tillögunum. Hafrannsóknastofnunin leggur til að einungis verði heimilt að veiða 10 þúsund tonn af úthafsrækju samanborið við 15 þúsund á yfirstandandi fiskveiðiári. Að mati fiskifræðinganna eru jákvæðar fréttir þær að ýsa, ufsi og skötuselur séu í vexti og kolmunni og norsk-íslenska síldin sýni sig nær landinu. Horfurnar séu aftur á móti ekki eins góðar varðandi þorsk, rækju, loðnu, grálúðu og karfa.
Fréttir Innlent Mest lesið Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Innlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Erlent Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls Innlent Fleiri fréttir Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Sjá meira