Innlent

Vill hafa ketti í bandi

Sigmar Eiríksson dýraeftirlitsmaður hefur því haft í nógu að snúast upp á síðkastið. "Ég hef til dæmis náð 35 köttum í einu og sama húsinu á einu ári en í heildina hef ég meðhöndlað um það bil áttatíu ketti," segir Sigmar. "Ef einhverjir verða fyrir óþægindum frá köttum hefur fólkið samband við mig og þá kem ég til þeirra með gildru. Svo þegar köttur er kominn í gildruna tek ég hann upp á dýraspítala og ef enginn kemur innan vikutíma að vitja hans er honum lógað." Reyndar er Sigmar með óvenjulegar hugmyndir varðandi kattahald og segist hann helst vilja að kettir séu hafði í bandi. "Það er alveg hægt að venja þá á það, ég hef séð dæmi þess," útskýrir hann. Einnig segist hann í auknum mæli þurfa að handsama hunda sem eigendur hafi skilið eftir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×