Innlent

Seglskútan Hetairos í höfninni

Seglskútan Hetairos sem mönnuð er fimm írskum sægreyfum liggur nú við Reykjavíkurhöfn en þeir segjast vera að bíða eftir góðu veðri til utanferðar. Þeir hafa verið að sigla um Ísland í þrjár vikur og eru yfir sig hrifnir af fegurð Vestfjarða þar sem siglt var um með viðkomu á Patreksfirði og Ísafirði. Skútan er 42 metrar á lengd og gnæfir mastur hennar eina 45 metra. Spurðir hvað hefði dregið þá alla leið til Íslands sögðust þeir einfaldlega hafa verið svo forvitnir að þeir gátu ekki á strák sínum setið. Skútan er skráð í Cayman eyjum í Karabíahafinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×