Innlent

Ólga í Landakotsskóla

Mikil ólga ríkir í Landakotsskóla eftir að skólastjórinn sagði upp störfum fyrir helgina. Áður hafði aðstoðarskólastjórinn verið látinn taka pokann sinn. Á föstudag sagði séra Hjalti Þorkelsson, skólastjóri Landakotsskóla, upp störfum, en hann hefur starfað við skólann undanfarin 22 ár, þar af sjö ár sem skólastjóri. Hjalti, sem ekki vildi koma í sjónvarpsviðtal, sagði að hann teldi sig ekki geta starfað með núverandi stjórn skólans vegna ágreinings um starfsaðferðir. Aðspurður hvort kennarar við skólann ætluðu sér að segja upp störfum í kjölfar uppsagnar hans, sagði Hjalti að hann hefði enga uppsögn fengið á borð til sín. Samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2 er mikil ólga meðal kennara og starfsfólks skólans vegna ástandsins í skólanum. Gunnar Örn Ólafsson, formaður skólanefndar Landakotsskóla, vildi ekki veita sjónvarpsviðtal en sagði að hann teldi að málið væri blásið upp í fjölmiðlum. Bessí Jóhannsdóttur aðstoðarskólastjóra var sagt upp störfum í maí og sagði Gunnar Örn að ástæða þeirrar uppsagnar hefði verið fjárhagserfiðleikar skólans. Starfsfólk Landakotsskóla hefur fundað stíft í dag vegna ástandsins í skólanum og í fréttatilkynningu sem send var út seinni partinn kom fram að undirbúningur fyrir næsta skólaár væri í fullum gangi og að á þessu stigi væru ekki fyrirsjáanlegar miklar breytingar á starfsliði skólans.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×