Innlent

Loks úrkoma á Suðvesturlandi

Fyrsta alvöru úrkoman hér á landi í meira en þrjár vikur féll á vestan- og suðvestanvert landið í morgun og er spáð töluverðri rigningu víða á þessu svæði næsta sólarhringinn. Bændur fagna rigningunni eftir þurrkinn að undanförnu en bændur í suðausturhluta landsins þurfa að bíða lengur eftir almennilegri vætu. Einhver mesti þurrkur á landinu er nú í jörð á Suðausturlandi en á veðurathugunarstöðinni í Akurnesi, skammt frá Höfn í Hornafirði, hefur ekki mælst eins lítil úrkoma í maí frá því mælingar hófust í kringum 1930. Úrkoman í síðasta mánuði mældist fjórir millímetrar en meðalúrkoma í maí á þessum slóðum eru 96 millímetrar. Þótt varla hafi komið dropi úr lofti nánast um allt land undanfarnar þrjár vikur býr jarðvegur á vestan- og suðvestanverðu landinu að því að síðastliðinn vetur var úrkomusamur. Hið sama gildir ekki um Norðausturland og suðaustanvert landið. Bændur fyrir vestan hafa margir hverjir fagnað vætunni sem loks gerði vart við sig í morgun enda sprettan verið afar lítil undanfarið. Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að lægðin sem nú er við landið komi að vestan þannig að mest væta er á vestan- og suðvestanverðu landinu. Hún muni hins vegar ekki vera tiltakanlega mikil á Suðausturlandi, í það minnsta ekki eins menn þekkja rigningu þar um slóðir, en þetta sé einn úrkomusamasti staður landsins. Ef sprettan eigi að taka verulega við sér þurfi mun meiri úrkomu og úrkoman þurfi helst að mælast í tugum millímetra á einhverju tilteknu tímabili á þeim slóðum. Einar segir að sums staðar, og þá sérstaklega þar sem úrkoma í vetur hafi ekki verið mikil, hljóti sprettan að vera sein og jafnvel engin en mjög víða á landinu hafi úrkoma verið mikil í vetur þannig að jarðvegurinn njóti þess enn í dag. Suðaustan- og austanlands hafi þó verið þurrt mjög lengi þannig að hann telji að gróður þar sé langt á eftir gróðri í öðrum landshlutum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×