Innlent

Geðraskanir og offita aðalvandamál

Geðraskanir, ofvirkni, offita, reykingar og ofbeldi eru helstu heilbrigðisvandamál þjóðarinnar nú og í fyrirsjáanlegri framtíð, að mati landlæknis. Sigurður Guðmundsson landlæknir segir í ársskýrslu embættisins að almennt sé heilsufar Íslendinga gott og betra en hjá flestum öðrum þjóðum. Dregið hafi úr tíðni kransæðasjúkdóma, heilaáfalla, slysatíðni hafi lækkað og farið sé að draga úr tíðni lungnakrabbameins og það dragi úr tóbaksreykingum þótt enn sé þar mikið verk óunnið. En það eru nokkrir þættir sem huga þarf sérstaklega að. Hann segir úrbóta þörf varðandi geðraskanir og hegðunarvandamál á borð við ofvirkni. Slíkt fari vaxandi í vestrænum samfélögum og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO, áætli að af þeim tugi heilbrigðisvandamála sem eigi eftir að verða þyngst í skauti næsta aldarfjórðunginn verði helmingurinn geðræns eðlis. Þá er offita og ofþyngd, einkum meðal barna og unglinga, vaxandi vandamál í velferðarsamfélaginu. Landlæknir segir að nú sé svo komið að fimmtungur íslenskra barna sé of þungur og fimm prósent of feit. Hann segir að með sama framhaldi verði Íslendingar búnir að ná Bandaríkjamönnum á þessum sviði. Hann segir offitu, ásamt tóbaksreykingum eitt af alvarlegustu heilbrigðisvandamálunum sem við blasi. Landlæknir nefnir einnig ofbeldi í þessu samhengi. Það sé orðið meira áberandi í umræðunni en óvíst sé hvort það fari vaxandi. Umræðan hafi opnast og þessum málum sé ekki lengur stungið undir stól. Hann nefnir í þessu sambandi kynferðislegt ofbeldi en ásýnd kláms í samfélaginu fari vaxandi og það hafi ekki minni heilsufarslegar og félagslegar afleiðingar en ýmislegt annað ofbeldi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×