Innlent

Úrbóta þörf vegna geðraskana

Sigurður Guðmundsson landlæknir segir úrbóta þörf í málefnum þeirra sem eiga við geðraskanir og ofvirkni að stríða sem og vegna offitu, tóbaksreykinga og ofbeldis. Þetta kemur fram í skýrslu landlæknis fyrir árið 2004. Landlæknir minnir á að geðraskanir og hegðunarvandamál eins og ofvirkni fari vaxandi í vestrænum samfélögum og að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO, áætli að af tíu mestu heilbrigðisvandamálunum næsta aldarfjórðunginn verði helmingurinn geðræns eðlis. Þá segir hann fimmtung íslenskra barna vera of þungan og offita ásamt tóbaksreykingum séu eitt af alvarlegustu heilbrigiðsvandamálunum sem við blasi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×