Innlent

Vill meiri kvóta til sjávarbyggða

"Aðild að Evrópusambandinu er ekki í þágu íslenskra hagsmuna og það á ekki að stefna að henni," sagði Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, í hátíðarræðu sem hann flutti á Patreksfirði í gær í tilefni sjómannadagsins. Kristinn sagði að velmegun Íslendinga mætti þakka sjálfstæði þeirra og meðfylgjandi yfirráðum yfir fiskimiðunum. Það megi ekki gefa eftir. Auk þess stakk Kristinn upp á að 20.000 tonna kvóta verði ráðstafað til sjávarbyggða, sem hvorki njóta góðs af stóriðjuuppbyggingu né þenslu á höfuðborgarsvæðinu. "Okkar auðlind er heima í héraði og hana á að nýta til atvinnuuppbyggingar heima í héraði eins og vatnsorkuna." Í ræðu Kristins kom ennfremur fram að hann teldi þörf á að stokka fiskveiðistjórnunarkerfið rækilega upp; það hafi þróast úr úr kerfi sem var fyrst og fremst til að takmarka heildarveiði yfir í lokað kerfi sem tryggir einokun, eykur samþjöppun og gerir nýliðun í greininni afar erfiða. Þetta ástand sagði Kristinn helst minna á bændaánauð fyrri alda. Hátíðarhöldin fyrir vestan þykja annars hafa tekist vel upp og veðrið lék við mannfjöldann sem safnaðist saman á Vatneyri Patreksfjarðar til að halda upp á daginn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×