Ófriður í Landakotsskóla 5. júní 2005 00:01
Séra Hjalti Þorkelsson, skólastjóri Landakotsskólans, hefur sagt upp störfum og eru sögusagnir um að honum muni fylgja stór hluti kennara. Margir foreldrar eru ævareiðir yfir þróun mála. Í maí sagði Gunnar Örn Ólafsson, formaður stjórnar rekstrarfélags skólans Bessí Jóhannsdóttur aðstoðarskólastjóra upp störfum. Við skólaslit nýverið kom fram í máli séra Hjalta að hann hafi á engan hátt komið að þeirri ákvörðun eða öðrum skipulagsbreytingum tengdum rekstri skólans. Í dag verða fundahöld vegna breytinganna í Landakotsskóla. Stjórn skólans fundar með kennurum klukkan tíu og svo með foreldraráði skólans klukkan ellefu og kynnir þá stöðu sem upp er komin. Klukkan sex í kvöld hafa svo foreldrar boðað til fundar þar sem þeir ætla að ræða stöðuna. Árdís Þórðardóttir, rekstrarhagfræðingur og móðir drengs í Landakotsskóla, segist hafa þungar áhyggjur af þróun mála. "Þetta er afleit staða. Ég er búin að eiga tvo drengi í Landakotsskóla og hef verið mjög ánægð og hefur þótt skólinn vera á réttri leið," sagði hún og furðaði sig á vinnubrögðum rekstrarnefndarinnar við uppsögn aðstoðarskólastjórans, en hún lét þegar af störfum. "Það getur vel verið að kaþólska kirkjan hafi getað hagað sér svona fyrir 600 árum, en það getur hún ekki gert núna öðruvísi en að fólk rísi upp og segi eitthvað," sagði hún. Gunnar Örn segir Hjalta hafa sagt starfi sínu lausu síðasta föstudag, en telur óvíst að fleiri kennarar fylgi í kjölfarið. Hann segir stjórnina hafa lagt að séra Hjalta að halda áfram en hann ekki viljað. "Við útskýrum stöðuna á fundum í dag og greinum frá að búið sé að gera ráðstafanir til að skólastarf geti verið óbreytt næsta haust," sagði hann. Gunnar Örn segir fjárhagsvanda skólans hafa verið orðinn mikinn og legið við ákvörðun um að skólastarfinu yrði hætt. "En svo kom loforð frá Reykjavíkurborg um að hækka framlög með hverjum nemanda og stofnað var nýtt rekstrarfélag um skólann," segir hann. Í kjölfarið var svo gripið til sparnaðaraðgerða, en þar á meðal segir hann hafa verið uppsögn aðstoðarskólastjórans. "Ef við hins vegar komum rekstrinum ekki á réttan kjöl núna þá hættum við þessu bara. Það er sorglegt ef til þess þyrfti að koma. Skólinn á 110 ára afmæli á næsta ári."
Fréttir Innlent Mest lesið Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Innlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Erlent Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls Innlent Fleiri fréttir Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Sjá meira