Innlent

LÍÚ vill færa sjómannadaginn

Hjörtur Gíslason, stjórnarmaður í Landssambandi íslenskra útvegsmanna, sagði í sjómannadagsræðu sinni í Reykjavík í gær að færa ætti sjómannadaginn fram á síðasta sunnudaginn í júlí. Hann sagði að áður fyrr hefðu sjómenn haft vit á því að spilla ekki vorvertíð og því hafi dagurinn verið fluttur fram í júní. Nú ættu sjómenn að hafa vit á því að spilla ekki úthafskarfa-, síldar- og humarvertíð og því ætti að flytja daginn fram í júlí. Sjómenn héldu daginn hátíðlegan í gær um land allt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×