Innlent

Áróður beinist gegn báðum kynjum

Forvarnaráróður vegna hjartasjúkdóma beinist jafnt að konum sem körlum á Íslandi, segir íslenskur hjartasérfræðingur. Þá sé enginn munur á kynjunum hvað varði greiningu og meðferð. Evrópurannsókn sýnir að lágt hlutfall kvenna er meðvitað um hættuna á hjartasjúkdómum og læknar þekki illa muninn á einkennum sjúkdómsins hjá körlum og konum. Tvær af hverjum þremur dönskum konum óttuðust að fá krabbamein en einungis tíu prósent óttuðust hjarta- og æðasjúkdóma sem er þó algengasta banamein kvenna. Í blaði Hjartaheilla, sem kemur út á morgun, segir að sá útbreiddi miskilningur að hjarta- og æðasjúkdómar séu karlasjúkdómar stafi af því að fræðsla og áróður um sjúkdóminn beinist fyrst og fremst að körlum. Í skýrslu Evrópsku hjartasamtakanna sem byggist á rannsókn níu sérfræðinga segir að læknar séu ekki nægilega vel þjálfaðir í að þekkja mismuninn á einkennum kvenna og karla þegar komi að hjartasjúkdómum. Ragnar Danielsen hjartasérfræðingur segir þetta ekki eiga við á Íslandi. Konur fái hér jafn góða greiningu og meðferð. Ragnar segir einkenni sem konur kvarti undan og kvartanamynstur þeirra annað en hjá körlum en flestir hjartalæknar geri sér grein fyrir því.  Þegar verið sé að skoða stóra hópa innan Evrópusambandsins, sem sé orðið gríðarlega stórt og faraldsfræði breytist þar þar með tilkomu nýrra ríkja, geti komið fram sláandi tölur í könnunum þar. Kvenhormón verja konur að miklu leyti fyrir hjartasjúkdómum framan af ævinni en eftir að breytingaskeiðinu er náð eru hjartasjúkdómar stór áhættuþáttur. En það forskot sem konur hafa á karlana að þessu leyti vinna þær þó að miklu leyti upp með reykingum sem eyðileggja þessa vörn. Ragnar segir þörf á að beina auknum áróðri gegn reykingum að íslenskum konum en almennt séð sé reynt að fræða íslenskar konur um hjartasjúkdóma jafnt og karla. Hjartavernd hafi staðið sig mjög vel hvað það varðar. Ragnar telur enn fremur að áróður hér á landi beinist almennt að báðum kynjum. Íslenskir læknar hafi verið mjög meðvitaðir um það að nálgast konurnar öðruvísi en karlana því þær kvarti öðruvísi og fái önnur einkenni og þær hafi einnig verið rannsakaðar öðruvísi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×