Innlent

Hringvegur lagfærður í Borgarfirði

Miklar lagfæringar og breytingar standa nú yfir á hringveginum frá Borgarfjarðarbraut að Brekku. Búast má við að umferð um svæðið tefjist töluvert í sumar, en um 3000 bílar aka um veginn á degi hverjum yfir sumarmánuðina. Þessi kafli hringvegarins, frá Baulu að Grábrók, hefur löngum þótt hættulegur. Mjór, með kröppum beygjum, lítið upphækkaður og hann bar engan veginn þá umferð sem um hann fer, en hún hefur þyngst töluvert undanfarin ár. Bæði er sumarhúsabyggð mikil á svæðinu og eins hefur nemendum og starfsfólki á Bifröst fjölgað og þar með vetrarumferð. Samtals á að endurbyggja um þrettán kílómetra kafla og er ætlunin að ljúka lagningu slitlags á tæpan helming þess í lok júní. Að sögn Guðmundar Rafns Kristjánssonar, deildarstjóra nýframkvæmda, þarf síðan að leggja farg á nýja veginn og leyfa honum að síga. Það þýðir sem sagt ekki að horfa á nýja veginn og furða sig á því að ekki sé búið að hleypa á hann umferð. Vegfarendur munu keyra á hlutum gamla vegarins og bráðabirgðavegum sem nú eru malarvegir en á þá verður lögð klæðning. Guðmundur segir búið að flýta verkinu um átta mánuði og verður því ráðist í seinni hlutann strax í október í stað þess að bíða til næsta sumars.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×