Ráðherra með rangt mál 5. júní 2005 00:01 "
Það er fjarri lagi að ráðherra fari þarna með rétt mál og nægir að benda á þorskveiðar í Barentshafinu því til sönnunar," segir Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins. Hann gagnrýnir harðlega það sem Árni Mathiesen, sjávarútvegsráðherra, mælti í Sjómannadagsræðu sinni í gær um að árangur Íslendinga varðandi stækkun þorskstofnsins væri ásættanlegur miðað við aðra. Guðjón furðar sig á þessum ummælum enda sé í dag veitt jafnmikið magn þorsks við Íslandsstrendur og gert var þegar kvótakerfið var fyrst sett á. "Þannig sér hver maður að árangurinn er enginn og þaðan af síður ásættanlegur. Ég veit ekki betur en að þorskstofninn hafi farið upp í Barentshafi þrátt fyrir að þar hafi verið farið verulega fram úr aflaheimildum árum saman og jafnvel áratugum. Og ástandið á þorskstofninum þar núna er betra en það hefur verið um langa hríð." Guðjón segir þetta renna enn frekari stoðum undir að viðurkenna að enginn árangur hafi náðst með því að kvótasetja þorskafla. "Það má ekki gleyma að kvótakerfið var upphaflega sett á eingöngu vegna aflabrests í þorskinum 1983. Þá var svartsýnisspá vegna þorskstofnsins og 22 árum síðar er nákvæmlega sama staða uppi. Það hlýtur að segja mönnum eitthvað."
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Hent nauðugri út úr hryllingshúsi vegna ógreiddrar leigu Innlent Ætla að hernema Gasaströndina Erlent Segir réttarríkið standa í vegi sínum Erlent Kári segist hafa verið rekinn vegna lygasögu Innlent Ekki sé hægt að kaupa fólk út eða rífa hús sem séu byggð samkvæmt leyfum Innlent Íbúar Gasa verði fluttir á brott „í þágu eigin öryggis“ Erlent Brosa hringinn á upphafsdegi strandveiða Innlent Komu naumlega í veg fyrir hryðjuverkaárás í Bretlandi Erlent Páfabíll verður færanleg heilsugæsla fyrir börn á Gasa Erlent Með bæði betri og fleiri vopn en síðast Erlent Fleiri fréttir Kári segir Amgen hafa beitt fantaskap til að losna við hann Halla og Björn halda til Svíþjóðar Brosa hringinn á upphafsdegi strandveiða Strandveiðar hafnar og óvissa í kvikmyndagerð Í beinni: Málþing um snjóflóð og samfélög Hent nauðugri út úr hryllingshúsi vegna ógreiddrar leigu Skallaði mann og dónalegur við lögregluþjóna Ekki sé hægt að kaupa fólk út eða rífa hús sem séu byggð samkvæmt leyfum Allt of mikið af svipuðum íbúðum á markaði skapi misræmi Bíða með að selja íbúðir frekar en að lækka verðið Óboðlegt að vista hælisleitendur sem eigi að vísa úr landi í fangelsum Brottfararstöð fyrir hælisleitendur og fasteignamarkaður í ójafnvægi Óvenjulítill snjór á hálendinu auki rýrnun jökla í sumar Segist hafa skipað hæfasta fólkið þvert á athugasemdir verkfræðinga Bæjarstjóri Ölfus biðlar til ríkisins vegna Garðyrkjuskólans „Maður skyldi ætla að það þurfi tiltekið siðferði til að starfa í lögreglunni“ Snjólaust á fjöllum og Garðyrkjuskólinn grútnar niður Njósnamálið, hræringar í evrópskum stjórnmálum og fjárhagur borgarinnar Eldur í bíl við fjölbýlishús í Urriðaholti Vakinn af „ölvunarsvefni“ inni á baði og brást ókvæða við Býður upp á sögugöngu um svæðið sem hún vill vernda Sex ára framtíðar sauðfjárbóndi á Rangárvöllum Samfylkingin bætir við sig og sauðburður á fullu Sinueldur við Landvegamót Sigldi ölvaður utan í annan bát og endaði í grjótgarði Kvartöld liðin frá jarðskjálftunum 17. júní á Suðurlandi Samfylkingin með 29 prósenta fylgi „Þetta hefur verið sorgleg þróun“ Mörg hundruð óseldar fasteignir og sótt í sund Rykið dustað af sólbekkjunum Sjá meira