Sjómenn séu undirstaða atvinnulífs 5. júní 2005 00:01
Sjómenn, ekki bankar og fjármálafyrirtæki, eru undirstaða íslensks atvinnulífs, sagði Árni Johnsen, fyrrverandi alþingismaður, í hugleiðingu í sjómannadagsmessu í Grafarvogskirkju í morgun. Haldið er upp á þennan dag alla helgina um land allt og má segja að í dag sé formlegi dagurinn, dagur ræðuhalda, viðurkenninga og messa. Hátíðin í Reykjavík verður sett klukkan tvö á Miðbakka með ræðu Guðmundar Hallvarðssonar, formanns Sjómannadagsráðs. Boðið verður upp á heilmikla dagskrá þar fyrir alla fjölskylduna eins og víðar um landið þar sem eins og áður segir margir tóku hins vegar forskot á sæluna í gær. Þá voru að sjálfssögðu hefðbundin sjómannadagsböll víða um land og fóru þau að mestu leyti vel fram. Eins og einn lögreglumaður orðaði það við fréttastofu Bylgjunnar þá eru sjómenn einfaldlega orðnir svo „dannaðir“. Vestmanneyingnum Árna Johnsen var hins vegar tíðrætt um það í hugleiðingu sinni í sjómannadagsmessu í Grafarvogskirkju í morgun að ekki mætti dæma sjómenn af hrjúfu yfirborði þeirra. Við ættum þeim margt að þakka en mættum vera mun duglegri í að sýna þeim virðingu. Árni sagði að íslenskir sjómenn hefðu fært Ísland inn í nútímann en ekki hagfræðingar, fjárfestingarfélög, bankar eða stjórnmálamenn. „Það var frumkvæði og sjálfstæði íslensku sjómannanna sem byggðu útgerð á Ísland frá upphafi útgerðar fyrir liðlega hundrað árum,“ sagði Árni. Þessa ætti að minnast hvern einasta dag þegar hugsað væri um þann árangur sem íslensk þjóð hefði náð. Sjómennskan er hættulegt starf eins og allir Íslendingar þekkja og hefur hafið tekið líf margra sjómanna. Árni minntist í ræðu sinni þeirra 500 sjómanna frá Vestmanneyjum sem farist hafa undanfarna öld, það er að meðaltali fimm ár hvert. Árni sagði landkrabba geta lært margt af sjómönnum. Ef þeir þyrftu að spúla dekkið í lok hvers dags líkt og sjómennirnir á bát sínum í lok hvers róðurs þá væri margt einfaldara og þá féllu menn síður í freistingar hversdagslífsins.
Fréttir Innlent Mest lesið Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Innlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Erlent Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls Innlent Fleiri fréttir Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Sjá meira