Innlent

Fögnuðu 75 ára afmæli skólans

Mikið var um dýrðir þegar haldið var upp á 75 ára afmæli Austurbæjarskóla. Hátíðahöldin hófust þegar farin var skrúðganga frá skólanum niður á Laugaveg þaðan upp Klapparstíg og Skólavörðustíg og framhjá Hallgrímskirkju að skólanum aftur. Göngumenn rifjuðu upp tíðarandann í kringum skólann á hinum ýmsu tímum í sögu hans. Þannig klæddust nemendur fötum sem lýstu tískusveiflum hvers áratugar frá því skólinn tók til starfa til dagsins í dag. Í fararbroddi var þó slagverkssveit, fánaberar og fólk í þjóðbúningum. Þegar skrúðgöngunni lauk hófst skemmtidagskrá í skólaportinu. Þar var þess meðal annars minnst að hundrað ár eru liðin frá fæðingu Stefáns Jónssonar rithöfundar sem lengi kenndi við skólann við góðan orðstír. Var gamla kennslustofan hans opin af því tilefni fyrir gesti og gangandi. Þá sagði Vilborg Dagbjartsdóttir skáld frá kynnum sínum af Stefáni. Hátíðardagskránni lauk með rokktónleikum í skólaportinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×